loksins ;)

Snilld hvernig við tókim chelsea reyndar 1-0 en ekkki 2-1 en;) bara gargandi ;) fór ágæsí gærmorgunniður í þykkvabæ og hafði eina grásu sá ekkert rosalega mikið, sá reyndar einn st+oran og mikinn hóp  býst við að þær fari einhverja næstu daga ;) svo maður fer bara að snúa sér að öndinni og rjúpunni ;) DSC00156


jæja .................................................

Jæja dáldið síðan maður setti færslu inn en hvað með ;) Gæsaveiðitímabilið að verða búið og rjúpnavertíðin er að skella á ;) náði í hreindýrsbelju í byrjun september lítil og nett var hún ;) er kominn með 37 gæsir og bara nokk sáttur með það ;) en er það ekki þannig að alltaf vill maður meira. Veiðimyndir 2008 213

Maður veit nú ekki alveg enn hvernig þetta verður á næsta ári vona að það verði hægt að stunda veiðar að einhverju leyti á næsta ári, að það verði ekki allt á heljarþröm.

Gaman frá því að segja að Liðinu manns í enska hefur bar byrjað ´með rosakrafti en það er stórleikur á sunnudaginn ;) við vinnum það 2-1 Kuyt og Carragher setja mörkin ;) skellir sér á gæs á sunnudagsmorgunin og svo að horfa á leikinn.

Sunndagskvöldið byrjar svo með svörtum englum og svo  Dagvaktin ;) gargandi snilld þeir þættir ;)Veiðimyndir 2008 166


hitt og þetta

Nú styttist óðfluga í að enski boltinn byrji að rúlla og hlakkar manni ansi mikið til þessa veturs :) Því nú erkomið að því Liverpool verður aftur enskur meistari eftir smá bið :)

Liverpool er búið að fá þrjá leikmenn eins og er en eigum eftir að fá bæði Barry og Keane og einn leikmann í viðbót og grunar að það sé stórt nafn ;)  veit ekki alveg enn hver það er en er nokkuð viss að það sé eitthvað í deiglunni.

Hef verið að hlusta á Nýja diskinn hans Einars Braga  Drauma og hefur það gefið mér nýja sýn á djass, ekki verið mikið að hlusta  mikið á djass eða eins og Einar Bragi sagði svo skemmtilega á Bylgjunni umm daginn ojjjjjjj Djass, en verð að segja að Draumar opnar eyru mín betur fyrir Djass og svo var diskurinn Skuggar góður , Einar Bragi mátt vera stoltur af báðum diskunum.

Skelfing hvað sumarið líður hratt, bara kominn 5 júlí og styttist í haustið með gæsinni og hreindýrinu ætlum félagarnir á svæði 2 um mánaðarmótin +ag sept að ná í 4 beljur og vonandi 4 kálfa á svæði 2 hlakka mikið til.

Er reyndar að fara að heimsækja félaga minn fyrir norðan á morgun sem lét stoppa upp hausinn á tarfinum sem ég skaut í fyrra og hlakka til á sjá hvernig er að sjá hann live, er búinn að sjá mynd af honum og er hann hrikalegur ;) set mynd inn af honum hér fljótlega ;)

Takk í bili ;) Skytta


Bensín

Alltaf hækkar þetta helv..... bensín maður fer nú að verða ansi pirraður á því. Tunnan hækkaði í morgun og það þýðir bensín hækkun hjá okkur á klakanum svo kemur kannski að tunnan hafi lækkað, en nei þá er ekkert lækkað þá þarf alltaf að klára gamlar birgðir sem voru keyptar á hærra verði. En dokið aðeins við hvað með gamlar birgðir sem voru keyptar fyrir hækkanir sem er alltaf að bera fyrir sig eru birgðir sem voru keyptar á lægra verði alltaf búnar ja á mettíma. En jæja best að hætta að pirra sig á því, skrapp á Þingvöll síðustu viku og ætlaði aldeilis að veiða haug af bleikju en nei nei ekki var hún við veiddi 2 fiska ja sem mætti kalla séstvallafiskur  En fangaði auggnablikið á þingvöllum um miðnætti læt eina mynd flakka með.
03.07.2008 017

helgin

fjölskyldan fór upp í bústað hjá tengdó um helgina . Ég og Árni svili minn og bogi fórum og reyndum að veiða í landmannaafrétt á sunnudeginum fórum fyrst í frostastaðavatn höfðum heyrt af mokveiði þar fyrir viku síðan en við urðum ekki varir þar  fórum þaðan í dómadalsvatn og náði ég þar einum urriða sem var 1 pund annars steindautt en helgin var fín ;)

best að sjá hvað maður endist lengi í bloggheimum ;)

Jæja þá er grunur á þriðja bjössanum ætli það sé ekki best fyrir yfirvöld að leita af sér allan grun um að hann sé upp á hálendinu svo hann fari nú ekki að angra ferðamenn ;) helst að skjóta hann sem fyrst ef hann er á klakanum ;)

Á morgun eru 2 mánuðir sléttir í fyrsta dag gæsaveiða og í framhaldi fer maður og nær sér í eina hreinkú og kálfinn líka ef hann kemur að kúnni ;)

Nóg í bili   ;)


Höfundur

Gunnar Ólafur Kristleifsson
Gunnar Ólafur Kristleifsson
sportveiðimaður af guðs náð ;)
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband